definición y significado de gull | sensagent.com


   Publicitad R▼


 » 
alemán árabe búlgaro checo chino coreano croata danés eslovaco esloveno español estonio farsi finlandés francés griego hebreo hindù húngaro indonesio inglés islandés italiano japonés letón lituano malgache neerlandés noruego polaco portugués rumano ruso serbio sueco tailandès turco vietnamita
alemán árabe búlgaro checo chino coreano croata danés eslovaco esloveno español estonio farsi finlandés francés griego hebreo hindù húngaro indonesio inglés islandés italiano japonés letón lituano malgache neerlandés noruego polaco portugués rumano ruso serbio sueco tailandès turco vietnamita

Definición y significado de gull

Definición

definición de gull (Wikipedia)

   Publicidad ▼

Sinónimos

gull- (adj.)

úr gulli

Ver también

gull- (adj.)

gull, gylla

gull (n.)

gull-, gulllitur, gylltur, úr gulli

   Publicidad ▼

Frases

Diccionario analógico

gull (n.)

metallic money (en)[Classe]

gold coin (en)[ClasseHyper.]

dÿrmætur[Hyper.]

gull-, úr gulli[Dérivé]



gull- (adj.)

gylla[QuiEst]

gull[QuiEstFaitDe]

málm-, málmkenndur, úr málmi[Similaire]


Wikipedia

Gull

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

  Silfur  
Platína Gull Kvikasilfur
  Röntgenín  
Útlit Gull
Efnatákn Au
Sætistala 79
Efnaflokkur Hliðarmálmur
Eðlismassi 19300 kg/
Harka 2,5
Atómmassi 196,96655 g/mól
Bræðslumark 1337,33 K
Suðumark 3129 K
Efnisástand
(við staðalaðstæður)
Fast form
Lotukerfið

Gull er frumefni með efnatáknið Au (latína: aurum) og er númer 79 í lotukerfinu. Þetta er mjúkur, gljáandi, gulur, þungur, hamranlegur og linur hliðarmálmur sem er ónæmur gegn flestum efnum en er hægt er að vinna á honum með klór, flúor og kóngavatni. Gull finnst sem molar eða sem gullkorn í grjóti og í árseti. Gull er einn af myntmálmunum.

Gull var áður fyrr notað sem seðlafótur margra þjóða og er einnig notað í skartgripagerð, tannlækningar, og í rafeindavörur. ISO gjaldmiðilstákn þess er XAU.

Saga og notkun

Gullmoli
Gullmoli

Gull er aðlaðandi og mjög verðmætur málmur, sem þekkst hefur í a.m.k. 5500 ár. Gull finnst stundum sjálfstætt í náttúrunni en finnst þó venjulega í sambandi við silfur, kvars (SiO2), kalsít (CaCO3), blý, tellúr, sink eða kopar. Gróflega áætlað er um 1 millígramm af gulli uppleyst í hverju tonni af sjó, en vinnsla á því úr sjó myndi þó ekki svara kostnaði. Áætlað hefur verið að hægt væri að koma öllu gulli sem þegar hefur verið hreinsað, fyrir í tening sem væri 20 metrar á kant.

Gull er mótanlegast og teygjanlegast allra málma. Eina únsu af gulli er hægt að fletja út í þynnu sem er um 5 metrar á kant. Þynnur af gulli eru notaðar í gyllingu handverks og listmuna. Þykkt einnar slíkrar þynnu getur verið um 0,000127 millimetrar, eða um 400 sinnum þynnri en mannshár.

Gullstangir í eigu landsbanka Svíþjóðar
Gullstangir í eigu landsbanka Svíþjóðar

Hreint gull er lint og er venjulega blandað saman við aðra málma eins og silfur, kopar, platínu eða palladíum til að auka styrkleika þess. Gullblöndur eru notaðar til framleiðslu skartgripa og skrautmuna, í tannfyllingar og í smámynt. Magn gulls í málmblöndu er mælt með mælieiningu sem nefnist karat. Eitt karat samsvarar 1 hluta af 24, þannig að í 18 karata gullhring eru 18 hlutar af hreinu gulli og 6 hlutar af íblöndunarefnum.

Gull er góður leiðari hita og rafmagns og tærist ekki í andrúmslofti. Því er hægt að nota gull í rafmagnstengla og rafrásir. Gull endurspeglar einnig innrauðri geislun mjög vel, sem gerir það nothæft til varnar geimflaugum og skýjakljúfum gegn hita sólarinnar. Hægt er að nota gyllta spegla til framleiðslu sjónauka sem næmir eru fyrir innrauðu ljósi.

Wikimedia Commons merkið
Margmiðlunarefni tengt gulli er að finna á Wikimedia Commons.

Geislavirk samsæta gulls (Au-198) er notuð við geislameðferð gegn krabbameini. Gull-natríum-þíósúlfat (AuNa3O6S4) er notað í meðferð við gigt. Gullklórsýra (HAuCl4) er notuð til varðveislu ljósmynda með því að skipta út silfuratómunum sem þegar eru til staðar í ljósmyndum.

 

todas las traducciones de gull


Contenido de sensagent

  • definiciones
  • sinónimos
  • antónimos
  • enciclopedia

 

4368 visitantes en línea

computado en 0,031s